Smárit Handíðaskólans - 01.08.1943, Side 15

Smárit Handíðaskólans - 01.08.1943, Side 15
13 er óvandvirkur eða kærulaus, vinnur beinlínis gegn þróun siðræns starfsþroska og gerir úr barninu verri þjóðfélags- þegn en það ella mundi verða. — — Fjöldi af iðnaðarmönnum hins gamla skóla eiga öll einkenni hins góða verknámskennara. Sömuleiðis margir hinna búhögu bænda og fjöldi af húsfreyjum landsins. Kvíði ég þvi engu um starfsþroska þeirra þarna, sem frá heimilum þeirra koma, — jafnvel þótt þau fengju litla verknámskennslu í skólum. En því miður eru þessi heimili þó allt of fá. Þess vegna verður að leggja svo mikla áherzlu á hið verklega nám í barnaskólunum. — Á síðari árum hefir allmikið borið á þeirri skoðun meðal kennara, víða um lönd, að tengja bæri hið hand- ræna nám sem nánustum tengslum við bóknámið. í þessu skyni hafa kennarar því látið börnin í landafræðitímun- um t. d. búa til upphleypt landabréf, í náttúrufræði móta dýr í leir, eða gera af þeim, eða öðrum viðfangsefnum námsgreinarinnar pappa- eða pappírslíkön, eða í sögu- tímunum búa til líkingu af fornri brú eða byggingu, mála þetta, skreyta o. s. frv. Mun vera óþarfi að benda á, að enda þótt þetta sé að verulegu leyti handræn starfsemi, þá er það þó ekki verk- legt nám í þeim skilningi, sem hér hefir verið haldið fram. Þetta er föndur, en ekki verknám eða vinna. Sem föndur á það fyllsta rétt á sér í skólanum. Það getur verið börnunum til gleði og mikils gagns. Það skapar heilbrigða tilbreytingu í námið, glæðir hugkvæmni barnanna, gefur þeim oft tækifæri til skapandi listrænnar starfsemi og örfar handlægni þeirra. Það er oft mjög vel til þess fallið að festa í minni bamanna námsefnið, eða einstök atriði þess, og skýrir fyrir þeim það, sem ella yrði ef til vill torskilið. Að því leyti er það hliðstætt skýringar- mynd, sem kennarinn dregur á töfluna. En föndur lýtur öðrum lögum en verknám. Verklegt nám, eða vinna, gerir ákveðnar kröfur um handbragð og hlutlægni og þar er

x

Smárit Handíðaskólans

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Smárit Handíðaskólans
https://timarit.is/publication/1881

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.